Erindreki

Úr ISIRWiki, frjálsu upplýsingasafni ISIR
(Tilvísað frá Agent)
Stökkva á: flakk, leita

SKILGREINING

ISIR logo.png


Erindreki er fyrirbæri (í líkama (e. embodied)) sem skynjar umhverfi sitt með skynjurum (e. sensor) og framkvæmir aðgerð á það með hvötum (e. actuator).

Efnisyfirlit

[breyta] Dæmi um agenta

Mennskur agent hefur augu, eyru og önnur líffæri sem skynjara og hendur, fætur og fleira sem hvata. Vélrænn agent, t.d. vélmenni, hefur myndavélar, fjarlægðarskynjara og fleira sem skynjara og t.d. hjól, arma og fleira sem hvata. Hugbúnaðaragent hefur lyklaborðainnslátt, netpakka o.fl. sem skynjara og hefur skjá, skráarvinnslu, pakkasendingu o.fl. sem hvata.

[breyta] Uppsetning agents

Skynjunarröð(e. perception sequence) er saga þess hvað agentinn hefur skynjað. Aðgerðir hans geta síðan verið byggðar á þessari skynjunarröð. Agent function segir til um, á abstract máta, hvaða aðgerð agent á að framkvæma m.v. skynjunarröð. Ef við getum sagt hvaða aðgerð agent á að framkvæma fyrir hverja skynjunarröð þá erum við búin að skilgreina agentinn til fulls og mun hann alltaf taka rétta ákvörðun. Rational Agent er agent sem tekur alltaf þá ákvörðun sem talin er skila mestum gróða m.v. aðgerðina, m.v. skynjunarröðina og fyrri þekkingu.

Frammistöðumat(e. performance measure) er mælikvarði á velgengni agents. Hvernig er best að framkvæma svona mat? Hægt væri að láta agentinn meta það út frá því hversu ánægður hann var með frammistöðuna, en við gætum fengið slæm eða engin svör út úr því. Þess vegna þarf einhvers konar hlutlaust frammistöðumat, sem oftast er gert af þeim sem bjó til agentinn. Í aðalatriðum þá er best að búa til frammistöðumat m.v. hvað menn vilja ná fram í umhverfinu, frekar en hvernig agentinn á að haga sér.

[breyta] Vinnuumhverfi

Vinnuumhverfi(e. task environment) agents er í raun vandamál sem hann þarf svo að leysa. Hægt er að flokka vinnuumhverfi eftir:

  • Frammistöðumati
    • Hvaða frammistöðumat hefur verið skilgreint?
  • Umhverfi
    • Hvernig umhverfi er verið að vinna í?
  • Hvatar agents
    • Hvaða hvata þarf agentinn?
  • Skynjarar agents
    • Hvaða skynjara þarf agentinn?

[breyta] Eiginleikar vinnuumhverfis

Vinnuumhverfi hafa ýmsa eiginleika:

[breyta] Fullkomlega sýnilegt – Hálf sýnilegt

Ef skynjarar agents gefa honum fullkomna stöðu af umhverfinu þá er vinnuumhverfið fullkomlega sýnilegt(e. fully observable). Með fullkomlega sýnileika er átt við að agentinn getur skynjað allt það sem hefur áhrif á ákvarðanatöku hans. Þannig þarf hann ekki að viðhalda innri stöðu til að fylgjast með umhverfinu.

[breyta] Deterministic – Stochastic

Ef næsta staða umhverfis er algjörlega háð núverandi stöðu og aðgerðinni sem agentinn framkvæmir, þá er vinnuumhverfið determinstic, annars er það stochastic. Í einföldum umhverfum þá getum við oft sagt til um hver næsta staða er út frá aðgerð, þ.e. við höfum fullkomna stjórn.

[breyta] Tímabundinn – Raðbundinn

Ef ákvörðun getur haft áhrif á framtíðarákvarðanir, þá er vinnuumhverfið raðbundið(e. sequential). Ef alltaf er bara tekin ein ákvörðun sem hefur engin áhrif á næstu ákvarðanir þá er vinnuumhverfið tímabundið(e. episodic).

[breyta] Statískt – Dýnamískt

Ef umhverfið getur breyst á meðan agentinn er að hugsa þá er það dýnamískt(e. dynamic) annars er það statískt(e. static). Ef umhverfið breytist ekki á hugsunartímanum en árangur í frammistöðumati breytist, eins og í hraðskák, þá er umhverfið semidynamic.

[breyta] Discrete – Continuous

Þessi greinarmunur á við stöðu umhverfisins, meðhöndlun tíma og skynjanir og ákvarðanir agents. Ef umhverfið er discrete, þá hefur það skilgreindar stöður, eins og t.d. skák. Umhverfi eins og t.d. akstur bíls er continuous.

[breyta] Single agent – Multiagent

Umhverfi er multiagent ef þar eru margir agentar og einhverjir þeirra hafa áhrif á aðgerðir agentsins okkar.

[breyta] Gerðir agenta

Agent forrit skiptast í fjórar gerðir:

Tenglar
Nafnrými
Útgáfur
Aðgerðir
Flakk
Verkfæri