Bílskúrsgervigreind

Úr ISIRWiki, frjálsu upplýsingasafni ISIR
Stökkva á: flakk, leita


CADIA (Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík) er að þróa nýja tækni, ásamt leiðbeiningum,
sem auðveldar áhugafólki að búa til gervigreind í bílskúrnum heima hjá sér.

Aðalsíðu Bílskúrsgervigreindarátaksins er að finna hér.

'
Bggreind JustRobo 300.jpg
Heimasíða http://ailab.ru.is/projects/bilskursgervigreind/
Markmið Keppni í gervigreindarsmíðum
Stofnað 2005

Hvað er bílskúrsgervigreind?

Bílskúrsgervigreindinni er ætlað að því að vekja áhuga og auðvelda þátttöku fólks í gervigreind. Farið var af stað núna í haust 2005 með að kynna hana og hvað hún hefur upp á að bjóða. Meðal þess sem við höfum í hyggju er að bjóða upp á stutt námskeið fyrir áhugaverð hugbúnaðartól og í samsetningu greindra kerfa, leiðbeiningar og að styðja hópa í smíði á áhugaverðum kerfum og jafnvel vélmennum.

Hverjir geta tekið þátt?

Verkefnið er hugsað fyrir allt fólk á aldrinum 16 ára og upp úr. Aldur þarf samt ekki að vera nein fyrirstaða ef áhugi og atorka er fyrir hendi. Almenn tölvukunnátta er æskileg ásamt lágmarks forritunarþekkingu. Einnig er gott að hafa einhvern skilning á rafmagni ef það eru vélmennin sem heilla.

Það að búa ekki yfir þessu ætti samt ekki að þurfa stoppa ykkur. Yfirlýst markmið okkar er að safna saman og búa til leiðbeiningar til að kenna ykkur það sem þið þurfið að vita.

ÞÁTTAKENDUR SKRÁ SIG HÉR
Þetta er listi þátttakenda í NÆSTKOMANDI KEPPNI, 29. apríl
Bílskúrsgervigreindarþátttakendur 2007

Leiðbeiningar fyrir bílskúrsgervigreind

Margvíslegar leiðbeiningar hafa verið gerðar fyrir hugbúnað og notkun mismunandi eininga sem nýtast í að smíða greind kerfi. Þarna er á mörgu að taka og geta bæði byrjendur og lengra komnir haft gagn og gaman að því sem þarna er að finna.

Hugbúnaðarleiðbeiningar fyrir gervigreind

Vélmennaleiðbeiningar

Sýndarheimar í Bílskúrsgervigreind

Gervigreind í sýndarheimum getur verið mjög skemmtilegt viðfangsefni, en þegar talað er um sýndarheima hér er átt við öll sýndar-umhverfi sem gervigreindar vera eða verur lifa innan. Best er að bera sýndarheima-flokkinn saman við erindreka flokkinn: Í raun er í báðum tilvikum átt við g-greindar verur sem túlka umhverfi og áreiti, nema í erindrekum er átt við g-greind sem vinnur með upplýsingar úr okkar heim, en í sýndarheima flokknum er g-greindin að vinna úr upplýsingum í sýndarumhverfi.
Augljóslega er það mjög vítt svið, allt frá tölvuleik þar sem g-greindin spilar (tafl, fyrstu-persónu skotleikir, o.s.frv.) eða einfaldlega g-greind persóna sem býr í sýndarhúsi og getur spjallað við þig um nýja tímaritið sem það fékk sent (frá g-greindum póstbera!).

Erindrekar í Bílskúrsgervigreind

Erindrekar (stytt "drekar", á ensku "agents") eru g-greind forrit sem hafa markmið og möguleika á að uppfylla þau markmið sjálf. Í Bílskúrsgervigreind er hér átt við forrit sem t.d. hægt er að tala við, sem jafnvel sjá þig með vefmyndavél og geta lýst þér, eða forrit sem þú getur beðið um að sækja fréttir af netinu. Eins og sagt var í lýsingunni á Sýndarheimum þá eru í báðum tilvikum erindrekar með í spilinu, en hér er átt við erindreka sem vinna meira með upplýsingar úr okkar efnislega heim frekar en t.d. "bot" í tölvuleik sem vinnur með sýndarupplýsingar.

Þjarkar og Vélmenni í Bílskúrsgervigreind

Allir alvöru tæknisinnaðir einstaklingar elska vélmenni. Það þarf varla að minnast á heimsþekkt vélmenni eins og R2D2 úr StarWars eða Aibo vélhundinn frá Sony. Þessi hluti miðar að því að gera öllum sem vilja hafa keyft að gera það sem allir nördar þrá... að smíða vélmenni.

Þessar leiðbeiningar miða að því að smíða vélmenni fyrir sem minnstan pening. Einnig er að finna ýmiskonar hugbúnaðar einingar sem notaðar eru til að stjórna vélmenninu og lesa af skynjurum. Ég hef reynt að gera þessar leiðbeiningar sem allmennastar til að hægt sé að nýta hugmyndirnar í sem flestum verkefnum. Ef þið hafið eitthvað um þessar leiðbeiningar að segja gott eða slæmt þá hvet ég ykkur til að senda póst á greinarhöfund láta skoðun ykkar í ljós. Einnig vill ég benda á spjall möguleikan efst á síðunni.

Til að skoða leiðbeiningarnar smellið á wiki hlekkinn hér að neðan
Skundar aka Véldýrið Pottormur

Greinar og önnur málefni

Grein Hrafns Þorra Þórissonar "Afkomendur mannkyns"

Grein Kristins R. Þórissonar "Hvað er (bílskúrs)gervigreind?"

Grein Ásrúnar Matthíasdóttur og Kristins R. Þórissonar "Er Bílskúrsgervigreind bara fyrir stráka?"

Tenglar
Nafnrými
Útgáfur
Aðgerðir
Flakk
Verkfæri