Fréttir 2008
Bílskúrsgervigreindarnámskeið 2008
Posted on 12 March, 2008 by Hrafn Thorri
Bílskúrsgervigreind – Byrjendanámskeið
Háskólanum Reykjavík, Ofanleiti 2.
Laugardaginn 15. mars, kl. 13:00 – 16:30
(Ókeypis þátttaka og takmarkað pláss)
Skráning: Sendið póst með nafni á netfangið bilskursgervigreind08 [hjá] cadia.ru.is
Gervigreindarsetur HR (CADIA) stendur fyrir kynningu á hugbúnaði og vélbúnaði tengdum átakinu & keppninni Bílskúrsgervigreind, laugardaginn 15. mars næstkomandi. Kynnt verða undirstöðuatriði valinna forrita og tækni sem hægt er að nýta við gervigreindarsmíðar.
Í þetta sinn verða haldin tvö námskeið, eitt fyrir byrjendur og annað fyrir lengra komna. Hið síðarnefnda verður haldið þann 29. þessa mánaðar.
Ekki hika við að mæta og kynna þér þessa spennandi og ört vaxandi grein! Meðal þess sem kynnt verður:
+ Gervigreind fyrir borðleiki + Panda3D – öflugt umhverfi til þrívíddarleikjaforritunar + og fleira
Þátttakendum býðst kostur á að prufa sjálfir forritin. (Tölvur verða staðnum — við mælum þó með eigin fartölvu. Sparið tíma með því að setja Java upp tölvunni fyrir námskeiðið.) Vinnustofan er ókeypis og opin öllum áhugasömum! Forritunarkunnátta æskileg (Java eða C++)
Fyrir kynningunni standa dr. Kristinn R. Þórisson, dr. Hannes Högni Vilhjálmsson og dr. Yngvi Björnsson, heimsmeistari í almennri leikjagreind.
Hlekkir:
- Aðalsíða Bílskúrsgervigreindar
- Gervigreindarsetur HR
- Spjallborð um Bílskúrsgervigreind Bílskúrsgervigreind á ISIRWiki
Posted in Allar fréttir, Gervigreind, Innlent, Uppákomur | Comments Off |