Gervilíf
Gervilíf, eða GLíf, hefur öðlast vaxandi áhuga á undanförnum árum þó að grunnhugyndin sé í sjálfu sér frekar gömul. Í þessum anga gervigreindarinnar er reynt að skilja uppruna flókinna náttúralegra kerfa útfrá minni hlutum þeirra.
Cellular Automata eru staðlaðar aðferðir við rannsóknir, þær er best að útskýra með einfaldri samlíkingu við atóm: atóm eru margir litlir hlutir sem lúta reglum um hvernig þeir eiga að hegða sér gagnvart hvor öðrum. Þegar mörgum atómum með einföldum reglum er hleypt saman, þá sést munstur samskipta þegar á heildina er litið sem er í raun mun flóknara en hver einstakur hlutur innan þessa kerfis.
Með öðrum orðum snýst ALife og Cellular Automata um samruna og þann eiginleika þegar „heildin er meiri en summa einstakra hluta hennar". Þessi eiginleiki kerfa er kallaður á ensku "emergence" - eða „samruni".
Lykilorð: artificial life, emergence, cellular automata, biological simulations
Notkun
Rannsóknir, hermilíkön