Hermilíkön:Forsíða verkefna
[breyta] Kynning
Gervigreind í sýndarheimum getur verið mjög skemmtilegt viðfangsefni, en þegar talað er um sýndarheima hér er átt við öll sýndar-umhverfi sem gervigreindar vera eða verur lifa innan. Best er að bera sýndarheima-flokkinn saman við erindreka flokkinn: Í raun er í báðum tilvikum átt við g-greindar verur sem túlka umhverfi og áreiti, nema í erindrekum er átt við g-greind sem vinnur með upplýsingar úr okkar heim, en í sýndarheima flokknum er g-greindin að vinna úr upplýsingum í sýndarumhverfi. Augljóslega er það mjög vítt svið, allt frá tölvuleik þar sem g-greindin spilar (tafl, fyrstu-persónu skotleikir, o.s.frv.) eða einfaldlega g-greind persóna sem býr í sýndarhúsi og getur spjallað við þig um nýja tímaritið sem það fékk sent (frá g-greindum póstbera!).
[breyta] Innlend verkefni
Ýmis innlend verkefni. Hér er öllum frjálst að halda uppi síðu um sín verkefni.