Hjálp:Gamla efnisyfirlits síðan
Fengið að miklu leiti frá http://is.wikipedia.org.
ISIRWiki handbókin inniheldur almennar leiðbeiningar um ISIRWiki. Mönnum er þó ráðlagt að lesa bæði almenna hjálp á ensku og ensku stílviðmiðin þótt vissulega gildi margt í þeim bara um texta og efni sem skrifað er á ensku, þó má finna afar góðar almennar leiðbeiningar þar. Einnig er hægt að skoða Dæmi um almenna upplýsingasíðu til að fá hugmynd um hvernig móta skal nýja síðu.
Hvað á að setja á ISIRWiki? ISIRWiki býður upp á að upplýsingar úr öllum fræðigreinum, sem þýðir að allt efni sem við kemur þeim er velkomið. Hafðu ekki áhyggjur af því, meira efni er betra en minna - ef eitthvað passar ekki hér inn, þá lagast það með tímanum. Glósur, tilvitnanir, hlekkir, gagnrýni á bækur, kóði úr forritunum þínum, upplýsingar um bóksölur - það er nánast ótakmarkað hvað á heima hér.
Efnisyfirlit |
[breyta] Að breyta síðu
ISIRWiki (og önnur Wiki kerfi) eru þeim eiginleika gædd að hver sem er getur breytt innihaldi þeirra. Ef síða er ekki vernduð (umsjónarmenn hafa ekki læst efnisinnihaldi) þá sést "breyta" flipi efst á síðum ISIRWiki. Með því að ýta á flipann færist þú á breytingasíðu þar sem hægt er að breyta og bæta við innihald síðunnar.
Hér gætu margir spurt hvernig síður kerfisins eru verndaðar frá hugsanlegum skemmdarvörgum sem breyta síðum á óskynsamlegan hátt. ISIRWiki og önnur wiki kerfi geyma breytingarlista langt aftur í tímann og bjóða upp á að falla tilbaka á eldri útgáfu síða. Þannig treysta wikikerfi á skynsama notendur þeirra til að halda efninu í góðu ásigkomulagi.
[breyta] Táknahefðir ISIRWiki
Til þess að setja stíl og form á efni ISIRWiki eru notaðar vissar táknahefðir við skrif texta. Þessu táknakerfi má líkja við HTML, þar sem viss tákn eru notuð til að kerfið skilji hvernig hún eigi að birta textann. Dæmi um þetta er ''Skáletraður texti'', þar sem '' táknin segja tölvunni að hér skuli hún gera textann skáletraðann.ISIRWiki keyrir á sama hugbúnaði og hin víðfræga Wikipedia.org orðabók og notar því sömu táknahefðir. Mikið er um hjálpargögn á vefnum um þessi málefni og er mælt með því að notendur ISIRWiki kynni sér þau gögn á meðan ISIRWiki er enn ungt. Þó má hér fyrir neðan sjá helstu tákn kerfisins.
[breyta] Að skrifa síðu
Helstu spurningum svarað varðandi skrif.
Allt sem skrifað er á ISIRWiki er birt undir GNU leyfinu nema í einstökum tilvikum þar sem annað er tekið fram. Það þýðir að hver sem er má nota textann sem hér er skrifaður og myndirnar sem hér eru birtar í hvaða tilgangi sem honum hentar. Allir geta afritað textann og gefið hann út, eða breytt honum að vild. Þegar þú skrifar greinar á Wikipedia þá gengurðu að þessum skilmálum. Ekki birta neitt hér sem er verndað með höfundarétti nema með leyfi starfsmanna ISIR, eða með vel gerðum heimildum og skýrum texta sem segir til um hvernig efnið er verndað.
[breyta] Hvernig á að skrifa góða grein?
Þegar þú hefur ákveðið um hvað þú vilt skrifa, þarftu að koma efninu frá þér á sómasamlegan hátt. Góð grein er fræðandi, hnitmiðuð, með réttum upplýsingum og helst eins hlutlaus og hægt er. Ef grein fjallar um málefni sem miklar deilur standa um, þá er hægt að reyna að kynna staðreyndir málsins á eins hlutlausan hátt og unnt er, og/eða kynna sjónarmið sem flestra án þess að gera upp á milli þeirra.
Ekki er hægt að búast við að allir séu snillingar í málfræði og stafsetningu. Þó geta allir nýtt sér málfræðihandbækur, orðabækur og stafsetningarorðabækur ef þeir eru í vafa. Sumir notendur ISIRWiki eru smámunasamir í þessum efnum og fara ítarlega yfir texta annarra til að bæta ásjón ISIRWiki. Þannig má líka nota ISIRWiki til að þjálfa sig í að skrifa góðan og hnitmiðaðan texta, og fylgjast svo með því hvað aðrir gera athugasemdir við. Ef sérstök ástæða er fyrir hendi gæti þó stundum verið gott ef einhver annar en höfundur greinarinnar læsi hana yfir áður en hún er birt á ISIRWiki. Einnig er mælt með því að notaður sé takkinn "Forskoða" áður en greinar eru birtar til að tryggja að allt sé eins og það á að vera.
[breyta] Tenglar
Að tengja inn í aðrar greinar er stór hluti af greinarskrifunum og er hægt að klikka á orðin til að fara á aðra grein sem fjallar nánar um það sem tengt var. Tenglar sem birtast bláir tengjast inn á ISIRWiki síður sem eru til eða tengjast á vefsíður utan ISIRWiki en þeir sem eru rauðlitaðir tengjast inn á síður sem ekkert hefur verið skrifað í. Gott er að venja sig á að tengja helstu orðin sem koma fyrir á síðunni en helst ekki tengja það í hvert einasta skipti. Sé greinin rosalega löng og kaflaskipt, þá ætti að vera í lagi að tengja á sömu greinina með löngu millibili. Alger óþarfi er að tengja aftur inn á síðuna sjálfa nema verið sé að tengja á sérstök svæði hennar.
Nánari upplýsingar um gerð tengla má finna á ISIRWiki:Tenglar.
[breyta]
Við gerð [[innri hlekkja]], vinsamlegast athugið nafnavenjur ISIRWiki. Reglan gerir ráð fyrir að aðalflokkar ISIRWiki (Verkfæri og fyrirbæri) eigi allir sér forsíðu útfrá nafni undirflokksins (t.d. Skynjun:Forsíða). Allt sem kæmi þá undir undirflokkinn ætti að hafa nafn flokksins og tvípunkt á undan sér (t.d. Skynjun:Sjón).
Aukaflokkar ISIRWiki (t.d. Verkefni), hafa nafn aðalflokksins á undan sér (T.d. Verkefni:Mittverkefni).
Þegar grein er nefnd skal hún almennt sett undir það nafn þar sem flestir myndu búast við. T.d. myndu flestir búast við mánaðarnafni á Mars en ekki súkkulaðistöng.
Einnig er mikilvægt að athuga hvaða almenna flokk ISIRWiki þú vilt birta grein undir. Sjá ISIRWiki fyrir nánari upplýsingar um flokkaskiptingu og nafnabil.
Nota skal eintölu í greinanöfnum nema þegar eintöluorð er ekki til. Ef venja kallar á að orðið sé venjulega sagt í fleirtölu, þá skal búa til tilvísun (redirect) frá nafninu í fleirtölu yfir í nafnið með eintölu. Einnig skal reyna að forðast notkun greinis í greinanöfnum.
Þegar mörg orð eru notuð um sama hlutinn, þá skal búa til tilvísun (redirect) frá öllum helstu samnefnum. Leita skal álits í Pottinum eða öðrum ISIRWiki umræðusvæðum um endanlega staðsetningu. Ef hún er ekki vituð, þá skal ekki setja tilvísanar á greinarnafnið fyrr en alger vissa er um hana en það er allt í lagi að semja greinina þangað til. Hún verður síðan færð á endanlegan stað þegar ákvörðun hefur verið tekin.
[breyta] Annað
Tilvísun (redirect) er gerð með því að setja textann #REDIRECT [[Greinarnafn]] efst í greinina.
[breyta] Tengt efni
- Dæmi um almenna upplýsingasíðu — Sýnir uppbyggingu greina, í vinnslu.
- Hjálp:Að byrja nýja síðu — Sýnir flestar leiðir til að búa til nýja grein.