Hjálp:Kennsla á tveim mínútum

Úr ISIRWiki, frjálsu upplýsingasafni ISIR
Stökkva á: flakk, leita

[breyta] Bæta við efni

Smellið á "breyta" hlekkinn efst á síðunni. Þetta mun opna síðu með dálk sem hægt er að breyta textanum í.

Hægt er að prófa að gera breytingar á þessari síðu.

Þegar þið eruð búin að gera breytingar á síðunni, getið þið smellt á "Forskoða" takkan, til þess að sjá hvernig síðan mun líta út með þeim breytingum.

Ef þið eruð ánægð með það hvernig síðan lítur út, smellið þið á "Vista" takkan fyrir neðan dálkinn, til þess að vista síðuna á ISIRWiki.

Ef þetta eru minnimáttar breytingar á síðunni, t.d. lagfæring á stafsetningarvillu eða útliti, ættuð þið að haka við "Minniháttar breytingar".

[breyta] Bæta við síðu

Textinn [[nafn á síðu]] er settur inn á einhverja síðu, þá myndast hlekkur sem bendir á síðu (sem í okkar tilviki er ennþá ekki til).

Textinn sem er á milli "[[" og "]]" táknanna, segir til um hvað nýja síðan heitir.

Athugið að ef síðan er ekki til nú þegar þá verður hlekkurinn rauður, en blár ef hún er til.

Til þess að skrifa efni á nýjar síður, er nóg að smella á rauða hlekkinn. Þá kemur síðan með breytingar dálkinum strax upp, alveg eins og þegar smellt er á "breyta" takkann.

Til þess að breyta titlinum á hlekknum sem búinn er til er hægt að bæta við | tákninu, svona: [[hlekkur|lýsing]]

Á ISIRWiki byrjum við því allar síður með [[nafn á flokk:síða|texti]].
Það er hefð fyrir því hjá okkur á ISIRWiki að gera þetta í öllum tilfellum, til þess að passa upp á að síður klessist ekki saman. Þetta getur komið fyrir þegar við erum með bók sem heitir sama nafni og bíómynd.

Nokkur dæmi um þetta:

Stundum er bætt við auka flokki til þess að búa til undirflokka. Dæmi: [[nafn á flokk:Undirflokkur:Síða|texti á þessa síðu]]

Tenglar
Nafnrými
Útgáfur
Aðgerðir
Flakk
Verkfæri