Hugbúnaðarleiðbeiningar fyrir gervigreind

Úr ISIRWiki, frjálsu upplýsingasafni ISIR
Stökkva á: flakk, leita

Efnisyfirlit

[breyta] Yfirlit

Hér er að finna upplýsingar um ýmsa hugbúnaðarpakka sem geta nýst greindarvélvirkjum, en athugið að heilsteyptar leiðbeiningar er einnig að finna á aðalasíðu Bílskúrsgervigreindarinnar hér!


[breyta] Psyclone

Psyclone er svokallað "middleware software" fyrir gervigreindarkerfi. Í stuttu máli er Psyclone milligöngukerfi fyrir mismunandi parta í hugbúnaði, sem þýðir að hægt er að smíða gervigreindar forrit í mörgum pörtum og láta svo Psyclone sjá um að koma skilaboðum á milli partanna. Þetta auðveldar mjög smíð g-greindra kerfa og býður upp á, svo dæmi sé tekið, að forritið:

  • Sé skrifað í mismunandi forritunarmálum
  • Sé "Modular", eða að hægt sé að skipta út pörtum þess og/eða bæta auðveldlega við það
  • Sé auðskiljanlegt og auðvelt að vinna með í hópum
  • Fari eftir stöðluðum samskiptum, þannig að partar forritsins geti virkað fyrir öll önnur Psyclone kerfi

[breyta] FreeTTS

FreeTTS, eða Free-text-to-speech er opinkóða (e. open-source) java-talgervill. Með öðrum orðum er hægt að nota FreeTTS til að láta tölvuna lesa upphátt hvaða enska texta sem er.

[breyta] Sphinx-4

Sphinx er opinkóða talgreinir skrifaður í Java forritunarmálinu. Hægt er að nota Sphinx til að greina það sem þú segir upphátt á ensku.

[breyta] ConceptNet

ConceptNet er common-sense gagnagrunnur, eða kerfi með upplýsingar um það sem við köllum í daglegu tali "common sense". T.d. að kýr eru dýr og dýr eru lifandi hlutir.


[breyta] Ótengdar en hjálplegar leiðbeiningar

[breyta] Eclipse

Eclipse er þróunarumhverfi.

[breyta] jPCT þrívíddarvélin

jPCT er ókeypis "library" skrifað í Java sem auðveldar þrívíddarforritun svo um munar. Með jPCT er hægt að gera allskonar þrívíddarforrit, m.a. Fyrstu persónu skotleiki, þriðju persónu bílaleiki (dæmi um bæði fylgja með jPCT) og allt þar á milli. jPCT er eitt af einföldustu ókeypis söfnum sem hægt er að vinna með þegar kemur að þrívídd og er mælt með því fyrir alla byrjendur í þrívíddarforritun.

[breyta] Hlekkir

Tenglar
Nafnrými
Útgáfur
Aðgerðir
Flakk
Verkfæri