ISIR

Úr ISIRWiki, frjálsu upplýsingasafni ISIR
Stökkva á: flakk, leita
ISIR
ISIRLogo.jpg
Heimasíða http://www.isir.is
Markmið Efla g-greindarsamfélag Íslands
Stofnað 19. Apríl 2005

Félag Íslands um Gervigreind og Vitvísindi

The Icelandic Society for Intelligence Research


Efnisyfirlit

Kynning

Félagið ISIR var upprunalega hugarfóstur Hrafns Þorra Þórissonar sem fannst of lítið til gervigreindarsamfélags Íslands koma og ákvað að koma af stað hreyfingu í þeim málum. Eftir um hálfs árs undirbúning voru megin stefnur og hugmyndir um félagið orðnar vel mótaðar. Félagarnir Arnar Freyr Óskarsson, Ágúst Hlynur Hólmgeirsson og Sturla Þórsson slógust þá í hópinn með Hrafni og sóttu um styrk til Evrópusambandsins undir fyrirsögninni "Íslenskt Gervigreindarfélag", með Dr. Yngva Björnsson, Helgu Waage og Dr. Kristinn R. Þórisson sem formlega ráðgjafa.

Styrkinn hlaut félagið og í kjölfarið var félagið skráð hjá Ríkisskjattsjóra þann 19. Apríl 2005. Fljótlega eftir styrkafhendingu sagði meðlimur sig úr stjórn félagsins og var Freysteinn Alfreðsson fljótlega upp úr því kosinn í stjórn félagsins, en Freysteinn hafði þá lagt umtalsverða vinnu í uppbyggingu félagsins sem stofnmeðlimur.

Félagið var formlega opnað í lok fyrirlesturs formanns á Gervigreindarhátíðinni 29. apríl árið 2006 og hlaut góðar viðtökur.

Hvað er ISIR?

Vélmennið Wakamaru
ISIR, borið fram „Æsir", er félag ólíkt öllum öðrum sem stofnuð hafa verið hér á landi. Um er að ræða félagasamtök (e. non-profit organization) stofnuð og rekið af áhugasömum aðilum sem finnst ekki nóg til gervigreindarsamfélags Íslands koma og vilja ýta undir þróun, notkun og kynningu gervigreindar hér á landi. Stefnt er á að halda félaginu eins almennu og opnu og hægt er fyrir alla þá sem hafa áhuga, óháð stöðu, menntun eða sérsviði, þó mismundandi reglur ríki um tegundir meðlima. Gervigreind er ekki lengur aðeins á færi sérmenntaðra tölvunarfræðinga að framkvæma og nýta - nú til dags er til ókeypis hugbúnaður á vefnum sem gerir jafnvel börnum kleift að gera tilraunir með g-greind.

Við viljum efla þátttöku Íslendinga í öllu sem við kemur gervigreind, róbótum og vitvísindum - og þar með tryggja það að Ísland verði ekki útundan í þessari mikilvægu tæknibyltingu sem vex nú hraðar en nokkurn tíman í sögu mannkynsins.

ISIR er umfram allt félag um gervigreind og róbóta - en þar sem gervigreind er mjög víðfemt fag fylgjum við nýstárlegri og mikilvægri hugmyndafræði: að gera ekki ráð fyrir að rannsóknir á gervigreind séu einskorðaðar við neitt eitt fag, heldur gera fólki frjálst að skýra sitt sjónarhorn á því efni sem fjallað er um með tilvísun í aðferðafræði þeirra vísinda sem henta hverju sinni. Með þessu vonumst við til að skapa betri heildarsýn á þau viðfangsefni sem tengjast gervigreind og vitvísindum en tekist hefur hingað til. Þar með skapast einnig breiðari grundvöllur fyrir samstarf milli stofnana, einstaklinga og fyrirtækja. Sökum þess hve gervigreind er víðfeðm kalla rannsóknir á mjög fjölbreytt samstarf: Þróun gervigreindar verður m.a. að styðjast við náið samstarf tölvunarfræðinga, sálfræðinga, rafverkfræðinga, heimspekinga og líffræðinga svo eitthvað sé nefnt. Síðast en ekki síst þarf stuðning almennings og áhugafólks til að búa til frjóan grundvöll til umræðna.

Ein útfærsla af marglaga tauganeti
Því má segja að ISIR sé félag um vitvísindi og tölvunarfræði sé verkleg undirstöða þess.

Starfssemi

Félagið starfrækir vefi sem (augljóslega) eru sífellt virkir.

  • Spjallborð ISIR má finna á http://forum.isir.is
  • Þessi vefur sem þú skoðar nú er upplýsingavefurinn ISIRWiki (wiki.isir.is), en það er upplýsingakerfi líkt og hin víðfræga alfræðiorðabók wikipedia.org, þar sem notendur kerfisins bæta sjálfir og breyta efnisinnihaldi síðunnar.
    • Meirihluti af efnisinnihaldi ISIRWiki heyrir undir GNU Freedoc License - sem þýðir að allt það efni sem safnast á vefinn er frjálst til notkunar (nema annað sé tekið fram) nánast hvar og hvernig sem er! Þar sem kerfi á borð við þetta er í þágu allra vona aðstandendur ISIR að sem flestir noti vefinn. Bent er á að vefurinn býður upp á mjög vítt efnissvið, allt frá almennri tölvunarfræði til sálfræði og heimspeki, því er líklegt að flestir komi til með að finna (eða skrifa) eitthvað sem þeim finnst áhugavert á ISIRWiki.

Nafnið ISIR

Þó félagið beri vissulega íslenskt nafn, þá er það venjan að vísa í ensku skammstöfunina í umræðum. ISIR stendur fyrir "Icelandic Society for Intelligence Research" og er borið fram "Æsir". Félagið hefur þó engin tengsl við trúarbrögð goðafræðanna, nema e.t.v. það að meðlimir þess hafa það sameiginlega markmið að skilja greind og skapa hugsun í annars dauðum hlutum.

Nánari upplýsingar

  • Lykilfólk
    • Upplýsingar um lykilfólk félagsins.
  • Markmið ISIR
    • Hér er að finna lýsingar á helstu markmiðum félagsins til lengri tíma.
Tenglar
Nafnrými
Útgáfur
Aðgerðir
Flakk
Verkfæri