ISIRWiki
|
Kynning | |
|
Velkominn á ISIRWiki, wiki kerfi Félags Íslands um Gervigreind og Vitvísindi, eða ISIR: The Icelandic Society for Intelligence Research. ISIRWiki er ætlað sem sameiginlegt upplýsingasafn Íslands um allt sem við kemur greind, gervigreind og öðrum greinum sem tengjast þessum hugtökum á einhvern hátt. Fyrir frekari upplýsingar sjáið síðu um ISIRWiki. Hvað á að setja á ISIRWiki? ISIRWiki býður upp á upplýsingar úr öllum fræðigreinum sem tengjast gervigreind. Hafðu ekki áhyggjur af því, meira efni er betra en minna - ef eitthvað passar ekki hér inn, þá lagast það með tímanum. Glósur, tilvitnanir, hlekkir, gagnrýni á bækur, kóði úr forritunum þínum, upplýsingar um bóksölur - það er nánast ótakmarkað hvað á heima hér. ISIRWiki er ætlað sem sameiginlegt upplýsingasafn Íslands um allt sem við kemur greind, gervigreind og öðrum greinum sem tengjast hugtökunum á einhvern hátt. Kerfið var gangsett þann 29. Júlí 2005 og opnað almenningi þann 27. september 2005. |
|
Efnissöfnun | |
|
Varðandi efnisinnihald þá skal almennt unnið útfrá því að þetta sé fyrst og fremst "Gervigreindarwiki", þ.e.a.s. að megintilgangur síðunnar sé að veita aðhald að g-greind og vitvísindum, eða tölvunarfræðin sé undirstaða rannsókna á vitvísindum. Hugmyndafræðin er að Tölvur og Gervigreind virki sem brú á milli rýmisins sem aðskilur fræðigreinar í dag. Með þessari aðferð er hægt að tengja saman fræðigreinar sem til dagsins i dag hafa staðið einar og sér vegna þess eins að ekki finnst almennilegur grundvöllur fyrir samvinnu. Reyna skal því að hafa eftirfarandi í huga þegar greinar eru skrifaðar:
eða
Síðan inniheldur þó einnig gamaldags flokkaskiptingar eins og sögu, sálfræði, stærðfræði, o.s.frv. Þessar greinar eru hér í þeim tilgangi að veita undirstöðu og aðhald að þeim hlutum sem fjallað er um í meginflokkum ISIR og einnig til að víkka efnisinnihald ISIR út frá flokkaskiptingu sem allir eru vanir. Á þennan hátt erum við einnig að bjóða upp á ókeypis safn af upplýsingum um klassískar fræðigreinar. |
|
Flokkaskipting | |
|
Flokkaskipting ISIR er hönnuð með nokkur einföld markmið fyrir sjónum: að brjóta niður rótgróna veggi milli fræðigreina og sameina þær undir nýju fagi gervigreindar. Tilgangur þess er tvíþættur:
Efni ISIR er mestmegnis tvískipt: í fyrirbæri og verkfæri. Fyrirbæri eru síður ætlaðar til umfjöllunar um þau fyrirbæri sem finnast í alheiminum, t.d. sjón, taugaboð, o.s.frv. Verkfæri eru hins vegar síður sem fjalla um þau verkfæri sem við notum til að rannsaka fyrirbærin. T.d. til að rannsaka sjón notum við kvikmyndatökuvélar, gervitauganet og ýmislegt fleira. Athugið að ISIR gerir ekki ráð fyrir að umfjöllun um fyrirbæri eða verkfæri sé einskorðuð við neitt sérstakt fag, heldur sé fólki með mismunandi menntun að baki frjálst að skýra sitt sjónarhorn á því efni sem fjallað er um. Með þessu vonumst við til að fá skapa betri heildarsýn á þau viðfangsefni sem tengjast g-greind og vitvísindum heldur en tekist hefur hingað til. |