Kennslugrein fyrir SVN Textaviðmót

Úr ISIRWiki, frjálsu upplýsingasafni ISIR
Stökkva á: flakk, leita

Aðeins þarf litla kunnáttu á textaviðmóti í tölvum til að geta notað SVN á einfaldan hátt. Textaviðmót er einnig þekkt sem texta skel, eða CLI á ensku. --Freysteinn 17:38, 12. október 2005 (GMT) Í stað þess að benda á síðuna textaviðmót, þá tel ég betra að taka fram að fólk þurfi að kunna á Tölvunarfræði:cmd.exe fyrir Windows NT og upp úr, eða Tölvunarfræði:sh fyrir Unix kerfi. Flestir eru samt að nota Tölvunarfræði:bash sem eru að nota Linux. -- Ef við skrifum síðu sem heitir Tölvunarfræði:Textaviðmót, þá verður hún að taka öll þessi kerfi fram.

Á þessari síðu er að finna upplýsingar um hvernig skal byrja notkun SVN sem fyrst.


[breyta] Helstu skipanir SVN í textaviðmóti

Skipanir
svn checkout <url>


svn commit -m "<lýsing á breytingu>"


svn add useles.txt


svn status <skrá>


svn move <færð skrá> <til skrá>


svn copy <skrá> <ný skrá>


svn delete


Áhrif
Nær í allar skrár á tilteknu SVN urli


Uppfærir skrár á netþjón með þeim breytingar sem gerðar voru.


Bætir skrá í lista skráa sem uppfærast við næsta commit


Birtir lýsingu á þeim breytingum sem eiga sér stað við næsta commit


Færir skrá, eða breytir um nafn á henni


Býr til afrit af skrá


Hendir skrá


[breyta] Sýnidæmi um vinnslu með SVN með textaviðmóti

Búið til möppu sem þið ætlið að geyma efnið á repository-inu sem þið ætlið að vinna með.

Yfirleitt þarf lykilorð og notendanafn til að nota SVN vefþjón, fáið þáð uppgefið hjá kerfisstjóra.

Til þess að ná í repository-ið, gerið eftirfarandi: Verið staddir í möppunni sem þið voruð að búa til og skrifið:

svn checkout http://svn.isir.is

Það sem gerist þá er að efnið á þessari slóð niðurhalast, dæmi um það sem kæmi á skjá er eftirfarandi:

A  tmp/test
A  tmp/test/drasl.txt
A  tmp/TODO
A  tmp/ChangeLog
A  tmp/src
A  tmp/src/hello.java
A  tmp/README
Checked out revision 1.

Núna eruð það efni sam var á repository-inu á ykkar vél og hægt er að breyta því eins og þetta séu venjulegar skrár.
Athugið að hér skiptir engu máli hvort command-line er notað til að breyta skránum, eða hvort notað er venjulegt gluggaviðmót.

Eftir að búið að er gera breytingar á skránum þá geri þið eftirfarandi til þess að senda breytingarnar inn í repository-ið:
( Passið að vera stödd í réttri möppu )

svn commit -m "Added a useless line to README"

Í dæminu hér að ofan er gert ráð fyrir að dularfullri og gagnslausri setningu hafi verið bætt í skjalið "Readme". Flipinn -m er notaður til þess að útskýra hvað var gert, en það er föst vinnuregla í útgáfustjórnarkerfum að skrá breytingar. Ef breytingarlýsingu er sleppt opnar SVN textaritil og krefst þess að skrifuð sé útskýring.


Þið ættuð að sjá eitthvað á borð við eftirfarandi eftir þessa skipun:

Sending        README
Transmitting file data .
Committed revision 2.

Þá eru breytingarnar sem voru gerðar í README skrárni komnar inn í repository-ið.


(Ég slepti því að setja hvað kemur út úr skipununum hér fyrir neðan)

Til þess að bæta við skrá í repository-ið gerið þið: (Í þessu tilfelli skránni useles.txt

svn add useles.txt

Þá veit svn að næst þegar þið kallið á "commit", þá mun þessi skrá fara með inn.

Á sama hátt er hægt að eyða skrá með því að gera: (Henda út file.txt úr repository-inu)

svn delete file.txt


Ef þið ættlið að færa skrá í repository-inu, þá skulið þið alls ekki nota delete og add.

Til þess að færa skrá eða breyta nafninu á henni í repository-inu, þá notiði skipunina "move".

Eins og þið sáuð áðan þá heitir skráin "useles.txt" en ekki "useless.txt". Til þess að laga það gerið þið:

svn move useles.txt useless.txt

Næst þegar þið gerið "commit" þá breytist nafnið á þessari skrá.


Hér koma tvær mikilvægustu skipaninar í svn:

Þessi skipun segir ykkur hvað á eftir að ské þegar þið gerið "commit" næst.

svn status

Þið eigið eftir að nota þessa skipun mjög mikið.

Til þess að fá útskýringar á því hvaða skipanir eru til í svn gerið þið:

svn help


Til þess að fá nánari útskýringar á skipun gerið þið: (Í þessu tilfelli fyrir skipunina "status")

svn help status


Þið ættuð að geta gert nást allt með þessum skipunum sem hér eru.

Ef þið kunnið ekki á svn skulið þið prófa þetta strax.


Hægt er að fá betri útskýringar á: http://svnbook.red-bean.com/

Tenglar
Nafnrými
Útgáfur
Aðgerðir
Flakk
Verkfæri