Merkingarvefir
Úr ISIRWiki, frjálsu upplýsingasafni ISIR
Merkingarvefir (e. semantic webs) snúast um lýsigögn (e. metadata, gögn sem lýsa gögnum) gagna og efnisinnihalds vefsíðna til að auðvelda tölvum að túlka og skilja merkingu þeirra. Slíkar merkingar og túlkun geta haft mikil áhrif á t.d. vefleit, þar sem tölvan gæti túlkað efni leitarinnar og skilað niðurstöðum í samhengi, frekar en að styðjast að mestu við að bera saman leitarorð við orð á vefsíðum. Dæmi um þetta væri þegar leit að „Myndum af Jóni” mundi skila myndum af Jóni, frekar en síðum sem innihalda orðin „myndum”, „af” og „Jóni”.