SVN svæði ISIR
Tilgangur SVN kerfi ISIR (http://svn.isir.is) er að halda utan um öll verkefni sem eru í eigu, eða eru styrkt af félaginu ISIR ásamt því að gera almenningi kleift að vinna sameiginlega að verkefnum á sviði g-greindar.
Athugið að eingöngu verkefni sem hafa verið samþykkt af ISIR fá hýsingu.
Hafir þú verkefni sem tengist gervigreind á einhvern hátt er þér velkomið að sækja um hýsingu hjá okkur.
Umsóknir skulu sendar á netfangið [email protected] þar sem fram koma eftirfarandi atriði:
- Heiti verkefnis
- Upplýsingar um höfundarrétt
- Heiti umsjónarmanna/manns
- Eðli verkefnis og markmið
Undantekningar koma vel til greina varðandi hýsingu á verkefnum sem tengjast ekki gervigreind, en aðeins ef umsjónarmaður þess er meðlimur ISIR og stjórn félagsins samþykki beiðnina. Hægt er að velja um hvort verkefnið skuli vera sýnilegt almenningi eða aðeins sýnilegt verkefnishóp.
[breyta] Verkefni opin almenningi á SVN svæði ISIR
- Kennsluforrit um erfðaalgrím (e. genetic algorithms)
- Upprunalegur höfundur: Freysteinn Alfreðsson
- Verkefnismeðlimir: Hrafn Þorri Þórisson og Freysteinn Alfreðsson
- Markmið: Að sýna á einfaldan hátt notkun erfðaalgríma