Skynjarinn
Skynjari (e. Perceptron) er grunn-vinnslueiningin í tauganetum (e. Artificial Neural Nets). Skynjarinn hefur skilgreind inntök (<math>X_1, X_2,...,X_n</math>) sem geta borið upplýsingar inn frá ytra-umhverfi kerfisins (s.s. myndavélum, hljóðnemum eða öðrum mælitækjum) eða úttak úr öðrum skynjurum. Tengt hverju inntaki er ákveðin vigt (<math>W_n</math>) sem kallast inntaksvigt (e. connection weight).
Úttak skynjara er í einfaldasta tilviki vigtuð samantekt allra inntaka hans, eða:
<math>y=\sum^{d}_{n=1}{w_nX_n + w_0}</math>
Hérna er <math>w_0</math> skurðpunkturinn (e. intercept value) og er ætlað að gera líkanið almennara. Þessi vigt ætluð fastsettu hlutdrægu inntaksgildi (<math>X_0</math>) sem nær alltaf er fastsett í +1. Markmið hvers skynjara er svo að "læra" réttu vigtina w fyrir intak x þannig að samantektin skili sem réttustu y úr skynjaranum. Ein möguleg leið til að læra þessar vigtir, þegar okkur er gefin ákveðin dæmigildi er að framkvæma línulega aðfallsgreiningu á gögnunum og velja þau gildi sem komast næst öllum gögnunum. Þá er hægt að nota jöfnuna hér að ofan ákvarða hvort ákveðin gögn tilheyri tveim mismunandi gögnum með einfaldri formúlu líkt og:
<math>s(y) = \begin{cases} 1 & \mbox{ef }y>0 \\0 & \mbox{annars}\end{cases}</math>
þá getum við
<math>\mbox{klasi} = \begin{cases} C_1 & \mbox{ef }s(w^Tx)>0\\ C_2 & \mbox{annars} \end{cases}</math>
Línuleg aðfallsgreining virkar einungis ef gögnin (þ.e.a.s. klasarnir) eru línulega aðgreinanlegir (þ.e. að hægt sé að aðskilja gögnin í tvo hluta með því að draga beina línu í gegnum þau)
[breyta] Önnur orð yfir skynjara
Skynjarann vantar staðlað nafn innan íslenskrar grundu, hjálpið til við að safna saman öllum orðum sem vantar staðlað nafn á G-greindarorð sem vantar Íslensk nöfn
- Sella
- Taugungur
- Taugafruma