Spjall:Forsíða

Úr ISIRWiki, frjálsu upplýsingasafni ISIR
Stökkva á: flakk, leita

[breyta] Tillögur að auka flokkum á forsíðuna

  • Sverrir: Legg til að breyta röðun í hægri dálk, fjarlægja "Tauganet (artificial neural networks)" og setja þar í staðinn "Vélræn þekkingaröflun (e. machine learning)" en það er eðlilegur yfirflokkur fyrir bæði supervised og unsupervised lærdómsaðferðir.
    • --Freysteinn 23:28, 29. september 2005 (GMT) Hvað væri eðlilegt að hafa sem namespace á undan því? (Það er "Tauganet:" núna) Erum við með eitthvað stutt fyrir það?
      • --Sverrir: Þekkingaröflun:Vélræn er svo hægt að bæta við það endingunum :Undir eftirliti og :Eftirlitslausar .. svo myndi bætast við t.d. fyrir ákvörðunartré=Þekkingaröflun:Vélræn:Undir eftirliti:Ákvörðunartré.. og fyrir Reinforcement learning yrðu hugsanlega= Þekkingaröflun:Vélræn:Eftirlitslausar:Styrkingar lærdómur:... hvað finnst ykkur? Of langt kannski?
        • --Hrafn Þorri 10:16, 30. september 2005 (GMT) Ég er sammála þér Sverrir að það núverandi flokkaskiptingu þarf að athuga. En það gengur ekki að setja "Tauganet" undir "Þekkingaröflun". Hvað með notkun tauganeta t.d. til að greina tal? og gætu vissar aðferðir úr erfðaforritun ekki flokkast undir lærdómsaðferðir líka? Mér líst betur á að bæta bara "Þekkingaröflun" sem sér yfirflokk í bili -- nema við finnum betri lausn?
          • --Hrafn Þorri 10:18, 30. september 2005 (GMT) Hver er nákvæmlega skilgreiningin á "Þekkingaröflun" ? Eigum við einhverja góða stutta í pokahorninu? btw. allir flokkar í "Verkfæri" eru vélrænir, þannig að við þurfum ekki að taka fram Vélræn-þekkingaröflun.

[breyta] Efni sem ekki er vitað hvar á að vera

--Freysteinn 20:10, 2. október 2005 (GMT) Þessi flokkur ætti að vera á sér síðu.

  • Tölvuleikir:Forsíða --Freysteinn 21:31, 3. október 2005 (GMT) Ætti væntanlega að vera undir "Fræðsluefni", eða hvað?
    • --Hrafn Þorri 14:30, 5. október 2005 (GMT) Nei, í raun finnst mér að þessir flokkar (tungumál og leikir) ættu að bíða til þess að draga ekki athygli frá aðal markmiði þessa vefs: Gervigreind. Við getum þó talað um þetta á næsta fundi.

[breyta] "Gamaldags fræðigreinar"

Hæ :) Finnst þessi titill frekar niðrandi. Er ekki hægt að kalla þessar greinar eitthvað annað? Legg til: Viðteknar, rótgrónar eða klassískar. --Heiða María 22:01, 27. ágúst 2006 (GMT)

  • Sæl sæl. Biðst afsökunar, að sjálfsögðu á það ekki að vera það heldur tilvísun í að ISIR fylgir annarskonar, nýrri, fræðaskiptingu. Athugasemd tekin til greina. Í raun ætti þetta að vera "Gamaldags fræðaskipting" — hvað finnst þér um það? Þetta verður rætt á næsta stjórnarfundi. --Hrafn Þorri 13:04, 23. september 2006 (GMT)
Tenglar
Nafnrými
Útgáfur
Aðgerðir
Flakk
Verkfæri