Tölvusjón:Forsíða verkefna

Úr ISIRWiki, frjálsu upplýsingasafni ISIR
Stökkva á: flakk, leita

[breyta] Kynning

Tölvusjón kallast það ferli, að láta tölvukerfi ná einhverri „vitneskju" úr mynd, hvort sem það er stök mynd, kvikmynd eða þrívíddarmynd. Vitneskja í þessu samhengi er eitthvað sem er nánari túlkun á hráu inntaksefni yfir í eitthvað á hærra stigi, eins og „á þessari mynd eru tvær manneskjur" eða „á þessari mynd er mikil hreyfing". Tölvusjón er að mestu leiti myndgreining og myndvinnsla, þaes ferlið að gera efnið meðfærilegra fyrir greiningaralgrím, hinn hlutinn er svo greining og gervigreind, sem er notuð til að „skilja" innihald efnisins. Tilgangur tölvusjónar er í raun að gera vélum kleift að taka við af mennskum starfsmönnum á hinum ýmsu sviðum.

Dæmi um nytsemi tölvusjónar:

  • Húðgreining - t.d. greina hvort fæðingarblettur sé æxli eða bara fæðingarblettur.
  • Verksmiðjur - Í verksmiðjum er fjöldi möguleika fyrir tölvusjón, hvort sem það er gæðaeftirlit með mat, eða róbótar sem setja saman bíla þá er tölvusjón í raun nauðsynleg til að vélvæða flesta þætti í verksmiðju.
  • Vélmenni - Til að gera vélmenni eða tölvu sem hafa samskipti við menn, er tölvusjón mikilvægur hluti af því að gera vélar „mannlegar"
  • Eftirlit - Eftirlitsmyndavélum fer sífellt fjölgandi í samfélaginu okkar og það myndi koma sér vel að hafa tölvu sem vinnur úr öllum þessum myndupplýsingunum, fylgist með öllu, tilkynnir svo ef eitthvað óeðlilegt er á seiði.
  • Aksturshjálp - Hægt er að nota tölvusjón við aksturshjálp og hugsanlega eftir nokkur ár geta bílar keyrt alveg sjálfir notandi tölvusjón.

[breyta] Innlend verkefni

Ýmis innlend verkefni. Hér er öllum frjálst að halda uppi síðu um sín verkefni.

[breyta] Erlend verkefni

Tenglar
Nafnrými
Útgáfur
Aðgerðir
Flakk
Verkfæri