Wakamaru (Vélmenni)
Úr ISIRWiki, frjálsu upplýsingasafni ISIR
| |
| Nafn | Wakamaru |
| Fyrirtæki | Mitsubishi Heavy Industries, ltd. |
| Einkenni | gulur á hjólum, standard kjólasnið |
| DOF | 13 |
| Stjórnun | sjálfstýrt, raddskipanir, wi-fi |
| Örgjörvi | Margir, tegund óþekkt |
| Dreifingaraðili | Mitsubishi |
| Heimasíða | http://www.mhi.co.jp/kobe/wakamaru/english/ |
Fyrsta sending af Wakamaru vélmennunum barst almenningi rétt fyrir jólin árið 2005, en þá seldi Mitsubishi fyrstu 100 vélmennin af þessari tegund. Hann kostaði þá um $14.000 bandaríkjadollara.
Wakamaru býr yfir mörgum eiginleikum, en vert er að nefna að hann keyrir á LINUX stýrikerfinu.
[breyta] Tækniatriði
- Stærð: 45 cm á breidd, 100 cm á hæð
- Þyngd: Um 30 kg
- Hreyfanleiki:
- Háls: 3 DOF
- Handleggir: 4 DOF á hvern handlegg
- Hjól: 2 DOF hvert hjól
- Hraði: Hámark 1 km/klst
- Nemar:
- Sjón: Allraáttamyndavél (e. omni-directional camera), venjuleg myndavél að framan
- Heyrn: Einn áttsækinn hljóðnemi (e. directional microphone), þrír venjulegir hljóðnemar
- Álags- og snertiskyn: Skynjari í hendi og öxl
- Innrauður nemi til að forðast hindranir
- Ómnemi (e. ultrasonic sensor) til að forðast hindranir
- Árekstrarsnemi (virkni óþekkt)
- Notendaviðmót: Raddstýring, wi-fi stjórnun gegnum net eða farsíma
- Orka: Rafhlöður, endast um tvo tíma í stanslausri notkun
[breyta] Möguleikar
- Talgerving: Japanska
- Talgreining: Japanska, þekkir um 10.000 orð.
- Tölvusjón:
- Andlits og umhverfisþekking.
- Þekkir tvo eiganda og átta aðrar persónur.
- Wakamaru getur elt og fundið fólk.
- Hægt er að stýra Wakamaru í gegnum farsíma eða veraldarvefinn
- Man venjulega dagskrá heimilisins og getur látið vita í tölvupósti ef eitthvað fer úrskeiðis
- Andlits og umhverfisþekking.
Sjálfhleðsla: Já. Wakamaru ratar að hleðslutæki sínu á eigin vegu.
[breyta] Heimildir
- Tækniatriði frá Tæknisíðu Wakamaru
